In Old Icelandic, when the word sonr formed the second part of a compound, i.e. Magnús-son, Sigurðs-son, the final -r (-ur) was dropped in nominative singular, and the same morphology is used in Modern Icelandic. E.g.:
Nom. Magnús Sigurðsson (son(u)r)
Acc. Magnús Sigurðsson (son)
Dat. Magnúsi Si...
Í heild hljóðaði spurningin svona: Hvað er líklegt að ísinn neðst undir Vatnajökli sé gamall? Gæti hann verið frá því á landnámsöld?
Sumarið 1972 náðu starfsmenn Raunvísindastofnunar Háskólans og félagar í Jöklarannsóknafélagi Íslands borkjarna úr jökulís Bárðarbungu. Því miður náði borinn ekki lengra en niður á ...
Hekluganga Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar markaði að ákveðnu leyti upphaf upplýsingarinnar hér á landi. Þeir klifu þetta víðfræga og alræmda fjall árið 1750 og afsönnuðu þá hjátrú að þar væri op Vítis en sýndu að hægt væri að mæla og rannsaka náttúruna á vísindalegan hátt. Fjallgangan var því táknræn fyrir...
Jón Árnason (1819-1888) þjóðsagnasafnari segir frá því í endurminningum sínum að hann hafi snemma haft áhuga á að heyra sögur og enginn sem gisti á Hofi, æskuheimili hans, slapp við að segja honum þær, jafnvel þó að drengurinn yrði svo lafhræddur að hann varð að biðja móður sína að halda utan um sig í rúminu.
...
Svarið er já, þessi regla er til og hún er svona:
v2 = 254 * μ * d
Hér er v hraði bílsins í kílómetrum á klukkustund (km/h) og v2 er þessi hraði margfaldaður með sjálfum sér; d er lengd hemlafara í metrum og μ (mu) er svokallaður núningsstuðull. Stuðullinn lýsir núningskraftinum milli bíls og undirlags...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hver var Sighvatur Þórðarson? Hvað gerði hann og var hann skyldur Snorra Sturlusyni?
Sighvatur Þórðarson var sonur Þórðar nokkurs sem var kallaður Sigvaldaskáld. Þórður var íslenskur maður en hafði verið með Sigvalda jarli í Noregi og komst síðan í þjónustu Ólafs konungs Harald...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Af hverju er talað um "að sækja um brauð" þegar prestur sækir um starf sem sóknarprestur?
Brauð þekkist hérlendis í merkingunni ‘staða prests’ að minnsta kosti frá fyrsta þriðjungi 18. aldar samkvæmt Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans. Notkunin er hugsalega orðin til fyrir áhrif...
Í fornu máli var eingöngu lengdarmunur á e [e] og é [eː] – broddurinn yfir é táknaði lengd. Á 13. öld þróaðist é yfir í tvíhljóð, [ie] (sjá Stefán Karlsson 2000:24). Síðan breyttist hljóðgildi fyrri hlutans og í nútímamáli stendur bókstafurinn é langoftast hvorki fyrir einhljóð né tvíhljóð, heldur samband tve...
Samkvæmt áreiðanlegustu upplýsingum bjuggu 91.368 manns á Íslandi í byrjun árs 1918 og 91.897 manns í árslok sama ár; meðalmannfjöldinn árið 1918 var því 91.633 manns.
Samsvarandi tölur fyrir árið 1944 eru 125.967 og 127.791. Meðalmannfjöldinn það ár var 126.879 manns.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Hvers...
Litín eða litíum hefur margs konar verkun á líkamann. Það verkar á frumuveggi, efnaskipti og svörun við hormónum og á taugaboð. Litín er mikilvægt lyf í meðhöndlun tvískauta lyndisröskunar (geðhvarfa, e. manic-depressive) en ekki er fullljóst í hverju áhrif þess á þessa geðröskun er fólgin. Líklega er það hamlandi...
Andhistamín, er hópur lyfja, sem við Íslendingar köllum rangnefninu ofnæmistöflur. Andhistamín keppa um sæti á svo kölluðum histamín-viðtækjum við histamín, sem er eitt aðalboðefnið við ofnæmisviðbrögð og veldur miklum roða, kláða og bjúg í húðinni og bjúg og samdrætti í sléttum vöðvum í innri líffærum.
Andhis...
Orðið bongóblíða kom fyrst fram í laginu Sólarsamba sem Magnús Kjartansson söng á sínum tíma, fyrst 1988. Á vefnum Bland.is fann ég þessi ummæli:
Lagið á 20 ára afmæli núna í vor og því tilvalið að dusta rykið af þessum þemasöng íslenska sumarsins og kynna það vonandi fyrir nýjum kynslóðum. Lag þetta var sem lím...
Þessu er að miklu leyti svarað í texta Sigurðar Steinþórssonar um spurninguna Hvers vegna er sjórinn saltur? og í öðrum svörum sem lesendur geta kallað fram með því að setja efnisorðið salt inn í leitarvél okkar.
Vatnið sem við drekkum er yfirleitt komið úr einhvers konar brunnum. Það er í aðalatriðum regnvatn...
Skammstöfunin SMS stendur fyrir 'Short Message Services' sem gæti útlagst smáskilaboðaþjónusta á íslensku.
Með smáskilaboðum má senda 160 stafi eða tákn í GSM síma, annaðhvort frá öðrum síma eða frá tölvu. Það er til dæmis hægt á síðum Vodafone, Símans og Nova.
Ef slökkt er á síma sem sent er til eða hann u...
Legsteinar í japönskum grafreit í Broome í Ástralíu.
Orðið leg hefur fleiri en eina merkingu en ein þeirra er 'staður sem eitthvað liggur á eða í'. Talað er um að menn fái leg í kirkjugarði þegar þeir eru grafnir, það er stað þar sem þeir eru lagðir til hvílu. Við þann stað er oft legsteinn, minningarsteinn þar ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!